Auðbrekka 9-11, kæra vegna samþykkt deiliskipulag.
Málsnúmer: 2010188
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3036. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 15. febrúar, lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 97/2020 þar sem kærð var ákvörðun bæjarstjórnar um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina Auðbrekku 9-11 þar sem heimilað var að breyta gistiheimili í íbúðarhúsnæði.
Lagt fram.
Fundarhlé hófst kl. 8:34, fundi fram haldið kl. 8:42.
Bókun:
"Undirritaðar, Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, bæjarfulltrúi Pírata, og Theodóra S. Þorsteinsdóttir, bæjarfulltrúi BF Viðreisnar, ásamt Einari Erni Þorvarðarsyni, bæjarfulltrúa BF Viðreisnar, greiddu atkvæði gegn deiliskipulagstillögunni fyrir Auðbrekku 9-11. Á fundi bæjarstjórnar var ekki orðið við beiðni um frestun og í framhaldinu bókuðu undirrituð að vafi væri um lögmæti afgreiðslunnar og að ekki hafi tekist að skýra það vafamál. Undirrituð töldu því óábyrgt að samþykkja tillöguna. Þvert á það bókaði formaður bæjarráðs, Birkir Jón, að samþykktin á breytingu á notkun húsnæðisins væri í samræmi við byggingareglugerð. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að fella skuli úr gildi ákvörðun meirihlutans frá fundi bæjarstjórnar þann 9. okt 2020 þar sem tillagan er haldin ágöllum og uppfyllir þar með ekki ákvæði reglugerðar."
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
Theodóra S. Þorsteinsdóttir