Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Fagrilundur, endurnýjun á flóðlýsingu.

Málsnúmer: 2010230

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3028. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 14. desember, lagðar fram niðurstöður útboðs í endurnýjun flóðlýsingar í Fagralundi þar sem lagt er til að gengið verði til samninga við Raf og tæknilausnir um lampa frá Thorn Altis.

Fundarhlé hófst kl. 12:08,fundi fram haldið kl. 12:23.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gengið verði til samninga við Raf og tæknilausnir.

02

Bæjarráð - 3021. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfisviðs, dags. 19. október, lögð fram beiðni um heimild til að fara í opið útboð á ljósalömpum fyrir flóðlýsingu við knattspyrnuvöll Fagralundi. Bæjarráð samþykkti að fresta málinu á fundi sínum þann 22. október sl. þar sem eldra vinnuskjal var undir málinu í stað lokaskjals.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum heimild til útboðs á ljósalömpum fyrir flóðlýsingu í Fagralundi.

03

Bæjarráð - 3020. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfisviðs, dags. 19. október, lögð fram beiðni um heimild til að fara í opið útboð á ljósalömpum fyrir flóðlýsingu við knattspyrnuvöll Fagralundi.

Bæjarráð samþykkir að fresta erindinu.

Fundarhlé hófst kl. 9:14, fundi fram haldið kl. 9:20

Bókun:

Ítrekað hafa erindi komið fram sem varðar opinber innkaup hjá Kópavogsbæ sem þarf að fresta vegna ástæðna sem hægt er að koma í veg fyrir. Hér er verið að leggja fram gögn sem ekki hafa verið rýnd. Hvorki af þeim sem undirbúa fund bæjarráðs, né að þeim sem leggja gögnin fram. Þetta eru vinnubrögð sem eru algjörlega óboðleg fyrir annað stærsta sveitarfélag á Íslandi.

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

Bókun:

Tek undir bókun Theódóru.

Sigurbjörg E. Egilsdóttir

Fundarhlé hófst kl. 9:21, fundi fram haldið kl. 9:42

Bókun:

Óskað var eftir frestun þar sem eldra vinnuskjal var undir málinu í stað lokaskjals. Verður það leiðrétt fyrir næsta fund.

Ármann Kr. Ólafsson

Birkir J. Jónsson

Hjördís Ýr Johnson

Karen E. Halldórsdóttir

Fundahlé hófst kl. 9:44, fundi fram haldið kl.9:55

Bókun:

Ég geri þá lágmarkskröfu að sá meirihluti sem nú stýrir sveitarfélaginu, komi undirbúin fyrir fund, rýni gögn og leggi fram rétt gögn fyrir fund bæjarráðs svo það bitni ekki á starfsemi Kópavogsbæjar. Ábyrgðin liggur hjá bæjarstjóra og formanni bæjarráðs samkvæmt bæjarmálasamþykkt. Þeir tveir eiga að tryggja framkvæmdastjórn og fjármálastjórn bæjarfélagsins.

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

Bókun:

Tek undir bókun Theódóru.

Sigurbjörg E. Egilsdóttir

Bókun:

Tek undir bókun Theódóru.

Pétur H. Sigurðsson.

Fundarhlé hófst kl. 9:56, fundi fram haldið kl. 10:01

Bókun:

Undirrituð ítreka fyrri bókun.

Ármann Kr. Ólafsson

Birkir J. Jónsson

Hjördís Ýr Johnson

Karen E. Halldórsdóttir

Fundarhlé hófst kl. 10:01, fundi fram haldið kl.10:12

Bókun:

Það er von okkar að róttækar breytingar muni eiga sér stað á vinnubrögðum meirihlutans og að við framfylgjum þeirri yfirlýstu stefnu bæjarstjórnar að leggja áherslu á ábyrgan rekstur þar sem áhersla er lögð á sjálfbærni og skilvirkni.

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

Sigurbjörg E. Egilsdóttir

Pétur H. Sigurðsson

Fundarhlé hófst kl. 10:13, fundi fram haldið kl. 10:27