Frestur til framlagningar og afgreiðslu fjárhagsáætlunar
Málsnúmer: 2010352
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3021. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 22. október, lögð fram tillaga um að Kópavogsbær óski eftir fresti til framlagningar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021 í samræmi við erindi samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins frá 15. október sl.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur tillögu um að óska eftir fresti í viku til framlagningar fjárhagsáætlunar.
Bókun:
"Undirrituð telur veigamikil rök fyrir því að Kópavogsbær sæki um fullan frest til framlagningar og afgreiðslu fjárhagsáætlunar í samræmi við erindi samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins."
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
02
Bæjarráð - 3020. fundur
Frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, dags. 15. október, lagt fram erindi um frest til framlagningar og afgreiðslu fjárhagsáætlunar sveitarfélaga.
Lagt fram.