Til baka í fundargerðir
Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030. Endurskoðun á stefnu um íbúðarbyggð og blandaða byggð og framlenging skipulagstímabils til ársins 2040.
Málsnúmer: 2010356
Ferill máls
01
Skipulagsráð - 84. fundur
Lagt fram erindi Haralds Sigurðssonar skipulagsfræðings f.h. Reykjavíkurborgar dags. 15. október 2020 er varðar breytingar á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030. Í breytingunum felst m.a. heildaruppfærsla á stefnu um íbúðarbyggð, skilgreining nýrra svæða fyrir íbúðir, stakar breytingar á völdum atvinnusvæðum og samgönguinnviðum, auk þess sem sett eru fram ný megin markmið í völdum málaflokkum. Tillögurnar gera enn fremur ráð fyrir því að tímabil aðalskipulagsins verði framlengt til ársins 2040. Erindinu fylgir skipulagstillögur ásamt umhverfisskýrslu og öðrum fylgigögnum.
Lagt fram. Skipulagsráð áskilur sér rétt til að koma með athugasemdir og ábendingar á síðari stigum málsins.