Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Stytting vinnuvikunnar - Menntasvið

Málsnúmer: 2010555

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1270. fundur

Frá sviðsstjóra menntasviðs og deildarstjóra grunnskóladeildar, lagðar fram tillögur að samkomulagi um styttingu vinnuvikunnar hjá stjórnendum í grunnskólum.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlagðar tillögur að samkomulagi um styttingu vinnuvikunnar hjá stjórnendum í grunnskólum.

02

Bæjarráð - 3112. fundur

Frá sviðsstjóra menntasviðs og deildarstjóra grunnskóladeildar, lagðar fram tillögur að samkomulagi um styttingu vinnuvikunnar hjá stjórnendum í grunnskólum.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

03

Bæjarráð - 3103. fundur

Frá menntasviði, dags. 17.10.2022, lagt fram samkomulag um styttingu vinnuvikunnar hjá kennurum í Snælandsskóla.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum tillögu að fyrirkomulagi vinnutímastyttingar Snælandsskóla.

04

Bæjarráð - 3091. fundur

Frá sviðsstjóra menntasviðs og deildarstjóra grunnskóladeildar, dags. 16.06.2022, lagt fram minnisblað um betri vinnutíma - styttingu vinnuvikunnar.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum tillögu að fyrirkomulagi vinnutímastyttingar í

Álfhólsskóla, Hörðuvallaskóla, Kársnesskóla, Kópavogsskóla, Lindaskóla, Salaskóla, Smáraskóla og Vatnsendaskóla. Bæjarráð hafnar tillögu að fyrirkomulagi í Snælandsskóla og hvetur til þess að ný tillaga verði lögð fram við fyrsta tækifæri.

05

Leikskólanefnd - 128. fundur

Á leikskólanefndarfundi þann 18. febrúar var lögð fram bókun um að leikskóladeild myndi afla gagna um hvernig vinnustytting væri að skila sér til barna og starfsfólks leikskóla.

Fyrirspyrjendur þakka greinargóð svör og óska eftir að fá upplýsingar um tillögur vinnuteymisins um útfærslur vinnutímastyttingarinnar í leikskólaum bæjarins þegar þær liggja fyrir.

06

Leikskólanefnd - 126. fundur

Harpa Björg Guðfinnsdóttir, mannauðsráðgjafi menntasviðs, kynnir fyrirkomulag styttingu vinnuviku í leikskólum Kópavogs.

Leikskólanefnd þakkar Hörpu Björgu fyrir mjög góða kynningu.

Bókun:

Ljóst er að þessar breytingar á vinnutilhögun í leikskólum geta haft margs konar áhrif á starfsemi leikskólanna, sérstaklega þegar horft er til annarra breytinga á starfsháttum sem felast í auknum undirbúningstíma leikskólakennara og draga einnig úr viðveru starfsmanna með börnunum. Eðlilegt er við slíkar breytingar að fylgst sé með hvort fullnægjandi þjónusta sé eftir sem áður veitt og að starfsálag sé áfram hæfilegt. Við óskum eftir að leikskóladeild afli frekari upplýsinga frá leikskólunum og kynni niðurstöður fyrir nefndinni sem fyrst. Við teljum brýnt að fylgjast með og tryggja að þjónustustig og starfsaðstæður séu fullnægjandi. Spurningar sem við óskum eftir skýrum svörum við eru eftirfarandi:

Er þjónustustig leikskólanna óbreytt þrátt fyrir styttri vinnutíma?

Hafa myndast göt í vaktaskipulagi leikskólanna þannig að aukið álag lendi á þeim sem eftir eru?

Er styttingin að skila sér í raun ? er starfsfólk færri tíma á vinnustaðnum?

Er stytting vinnuviku foreldra að birtast í styttingu dvalar barna á leikskólum?

Er þörf á að samræma fyrirkomulag í leikskólum hvað varðar útfærslu breytinganna eða miðla reynslu milli starfseininga til að sníða af vankanta?

Er þörf á frekari aðgerðum til að mæta hugsanlega neikvæðum áhrifum breytinganna?

Bergþóra Þórhallsdóttir og Hannes Þórður Þorvaldsson Sjálfstæðisflokki og Sverrir Kári Karlsson Framsóknarflokki.