Til baka í fundargerðir
Fyrirspurn bæjarfulltrúa Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur um hvort bæjarfulltrúi hafi brotið siðareglur bæjarstjórnar með fjarveru á fundum
Málsnúmer: 2011071
Ferill máls
01
Forsætisnefnd - 168. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 24. nóvember, lögð fram umsögn um hvort bæjarfulltrúi Guðmundur G. Geirdal hafi brotið siðareglur bæjarstjórnar með fjarveru sinni á fundum.
Með vísan til umsagnar lögfræðideildar, dags. 24. nóvember 2020, er það afstaða forsætisnefndar að bæjarfulltrúinn hafi ekki gerst brotlegur við siðareglur bæjarstjórnar.
02
Forsætisnefnd - 165. fundur
Ósk bæjarfulltrúa Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur um að forsætisnefnd skeri úr um hvort Guðmundur Gísli Geirdal bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins hafi brotið siðareglur bæjarstjórnar með fjarveru sinni á fundum bæjarstjórnar á tímabilinu júní - október 2020.
Forsætisnefnd vísar erindinu til umsagnar bæjarlögmanns.