Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2036. Tillaga að breyttu aðalskipulagi.

Málsnúmer: 2011202

Ferill máls

01

Skipulagsráð - 86. fundur

Lagt fram erindi Arinbjarnar Vilhjálmssonar skipulagsstjóra Garðabæjar, dags. 28. október 2020. Óskað er eftir umsögn sbr. 30. gr. skipulagslaga vegna skipulagslýsingar fyrir tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2036. Unnið er að breytingu sem nær til alls upplands sveitafélagsins, þ.e. landsvæðis innan sveitafélagsins utan þéttbýlismarka. Unnið er í endurskoðun stíga og reiðvega í upplandi Garðabæjar sem kallar á breytingu á aðalskipulagi auk þess sem fyrirhuguð er friðlýsing á Urriðakotshrauni og deiliskipulagsgerð fyrir golfvöll og útivistarsvæði í Urriðavatnsdölum. Skipulagslýsingin er dags. 1. október 2020, óskað er eftir að umsögn berist fyrir 30. nóvember 2020. Erindinu fylgir skipulags- og matslýsing dags. 1. október 2020.

Lagt fram.