Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Arnarnesvegur, vegamót við Breiðholtsbraut. Breyting á útfærslu gatnamóta. Matskyldufyrirspurn. Umsögn.

Málsnúmer: 2011395

Ferill máls

01

Skipulagsráð - 87. fundur

Lögð fram umsögn sviðsstjóra Umhverfissviðs dags. 24. nóvember 2020 sbr. umsagnarbeiðni Skipulagsstofnunar dags. 16. nóvember 2020 og varðar matskyldufyrirspurn Vegagerðarinnar um Arnarnesveg og útfærslu gatnamóta Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar.

Lagt fram.

02

Bæjarráð - 3024. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 17. nóvember, lagt fram erindi frá Skipulagsstofnun dags. 16. nóvember sl. þar sem óskað er eftir umsögn um hvort þörf sé á nýju umhverfismati vegna vegamóta Arnarnesvegar við Breiðholtsbraut.

Lagt fram.