Til baka í fundargerðir
Íþróttahátíð Kópavogs - Þátttaka í alþjóðlegum mótum
Málsnúmer: 2101320
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 108. fundur
Síðast liðin 2 ár hefur íþróttaráð veitt íþróttafólki úr Kópavogi viðurkenningu ráðsins vegna þátttöku í keppnum/mótum á alþjóðlegum vettvangi.
Íþróttaráð samþykkir að veita eftirtöldum íþróttamönnum viðurkenningu vegna þátttöku þeirra á Evrópumeistaramótum í sinni íþrótt á árinu 2020.
Aroni Snæ Júlíussyni og Huldu Clöru Gestsdóttur GKG í golfi, Arnari Péturssyni Breiðablik í maraþonhlaupi, Ingvari Ómarssyni Breiðablik í fjallahjólreiðum og Valgarði Reinhardssyni Gerplu í fimleikum.