Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Fyrirspurn frá Bergljótu Kristinsdóttur. Hamraborg og vesturhluti Kársnes.

Málsnúmer: 2101329

Ferill máls

01

Skipulagsráð - 90. fundur

Lögð fram fyrirspurn Bergljótar Kristinsdóttur dags. 12. janúar 2020 þar sem óskað er lista yfir athugasemdir sem bárust við vinnslutillögur 1 og 2 fyrir Traðarreit vestri B1-1 og Fannborgarreit B4 og viðbrögðum við þeim. Þá er einnig óskað eftir að gerð verði grein fyrir samningum sem gerðir hafa verið milli Kópavogsbæjar og lóðarhafa á ofangreindum svæðum og hvort sambærilegir samningar hafi verið gerðir við lóðarhafa Bakkavarar 1-3 og Þinghólsbrautar 77-79. Þá lagt fram minnisblað verkefnisstjóra dags. 16. október 2020 með samantekt athugasemda og viðbragða.

Lagt fram.