Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Fyrirspurn frá Birni Þór Rögnvaldssyni nefndarmanni í jafnréttis- og mannréttindaráði um stöðu innleiðingar á lögum nr. 40-2020, um vernd uppljóstrara

Málsnúmer: 2102678

Ferill máls

01

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 81. fundur

Undirritaður óskar eftir upplýsingum frá Kópavogsbæ um hvort búið sé að gera reglur um verklag við uppljóstrun starfsmanna. Ef svo er ekki, hvenær er fyrirhugað að gera slíkar reglur.



Björn Þór Rögnvaldsson

Fulltrúi Samfylkingarinnar

Verklagsreglur um uppljóstrun starfsmanna skv. lögum um vernd uppljóstrara nr. 40/2020 eru ekki til staðar hjá Kópavogsbæ.


Jafnréttis- og mannréttindaráð hvetur Kópavogsbæ til að fylgja eftir lagaskyldu sinni skv. lögum nr. 40/2020 og semja reglur um verklag um uppljóstrun starfsmanna og kynna fyrir starfsmönnum.