Tillaga bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur um að vinna og birta samfélagsskýrslu samhliða ársreikningi
Málsnúmer: 2104042
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3049. fundur
Frá bæjarritara og sviðsstjóra fjármálasviðs, dags. 08.06.2021, lögð fram umsögn um tillögu bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur um að vinna og birta samfélagsskýrslu samhliða ársreikningi.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gerð verði samfélagsskýrsla fyrir Kópavogsbæ í samræmi við framlagt erindi.
02
Bæjarstjórn - 1236. fundur
Tillaga bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur um að Kópavogsbær láti vinna árs- og samfélagsskýrslu og birti með stafrænum og aðgengilegum hætti á heimasíðu Kópavogsbæjar. Jafnframt að skoða kosti þess að nota GRI staðal til þess að halda utan um efnahagsleg, umhverfisleg og félagsleg áhrif Kópavogsbæjar við gerð samfélagsskýrslunnar.
03
Bæjarráð - 3042. fundur

Bæjarráð vísar málinu til umsagnar sviðsstjóra stjórnsýslusviðs og sviðsstjóra fjármálasviðs.