Til baka í fundargerðir
Umferðaröryggi við grunnskóla Kópavogs erindi frá Andra Steini Hilmarssyni
Málsnúmer: 2105165
Ferill máls
01
Umhverfis- og samgöngunefnd - 141. fundur
Lagt fram erindi frá Andra Steini Hilmarssyni dags. 6. maí 2021 um að gerð verði úttekt á umferðaröryggi við grunnskóla Kópavogs. Skoðað verði hvernig breyta og bæta megi sleppisvæðum við skólana, umferðarflæði inn á lóð grunnskóla og eftir atvikum leikskóla í nálægð við grunnskóla og mögulegar breytingar til að auka umferðaröryggi og stuðla að því að lóð grunnskóla nýtist af sem mestum hluta undir skólastarfsemi.
Vísað til umsagnar umhverfissviðs.