Til baka í fundargerðir
Hafnarbraut 13b, Óli & Co. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi fyrir Brasserie Kársnes
Málsnúmer: 2107009
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3052. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 02.07.2021, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 30.06.2021,þar sem óskað er umsagnar um umsókn Óla & C0,kt. 450221-0580 um nýtt rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki II, að Hafnarbraut 13b, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. reglugerðar nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.