Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Ögurhvarf 4, Hótel Heiðmörk ehf. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um endurnýjun á rekstrarleyfi

Málsnúmer: 21081457

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3056. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 31.08.2021, lagt fram lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 30.08.2021 þar sem óskað er umsagnar um umsókn Hótel Heiðmarkar ehf., kt. 520264-0199, um endurnýjað rekstrarleyfi til að reka gististað í flokki IV, að Ögurhvarfi 4, 203 Kópavogi í skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. reglugerðar nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.