Opin hugmyndsamkeppni um Reykjanesbraut og svæðiskjarna í Smára.
Málsnúmer: 2108507
Ferill máls
01
Skipulagsráð - 118. fundur
Lögð fram til kynningar vinningstillaga Ask arkitekta í hugmyndasamkeppni um Reykjanesbraut og svæðiskjarna í Smára. Bæjarstjórn Kópavogs átti frumkvæði að hugmyndasamkeppni um Reykjanesbraut og svæðiskjarna í Smára sem samþykkt var í bæjarstjórn 11.maí, 2021. Hugmyndasamkeppnin var unnin í samvinnu Kópavogsbæjar og Arkitektafélags Íslands. Markmið Kópavogsbæjar með samkeppninni var meðal annars að styrkja svæðiskjarnann í Smára og efla tengsl á milli svæða innan kjarnans fyrir alla ferðamáta. Tillagan Borg í mótun/Grænn miðbær vann 1. verðlaun í hugmyndasamkeppni um þverun Reykjanesbrautar ásamt byggð yfir og/eða við Reykjanesbraut auk tengingar fyrir vistvæna ferðamáta í svæðiskjarna í Smára. Fulltrúar Ask arkitekta ehf kynna tillöguna.
Lagt fram og kynnt.
02
Umhverfis- og samgöngunefnd - 147. fundur
Lögð fram til kynningar keppnislýsing fyrir opna hugmyndasamkeppni um Reykjanesbraut og svæðiskjarna í Smára sem Kópavogsbær (útbjóðandi) heldur í samstarfi við Arkitektafélag Íslands. Keppnislýsingin er dags. 5. nóvember 2021.
Lagt fram og kynnt.
03
Skipulagsráð - 108. fundur
Lögð fram til kynningar drög að keppnislýsingu fyrir opna hugmyndasamkeppni um Reykjanesbraut og svæðiskjarna í Smára sem haldin verður í samstarfi við Arkitektafélag Íslands. Drögin, dags. 29. október 2021 eru trúnaðarmál og ekki til dreifingar.
Lagt fram og kynnt.
04
Skipulagsráð - 103. fundur
Lagt fram minnisblað skipulagsdeildar um hugmyndasamkeppni um útfærslu Reykjanesbrautar milli Skógarlindar og Arnarnesvegar dags. 29. júlí 2021.
Lagt fram og kynnt.