Tillaga um grænkeravalkost í mötuneytum erindi frá Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur
Málsnúmer: 2108509
Ferill máls
01
Menntaráð - 105. fundur
Tillaga um að boðið verði upp á grænkera valkost í mötuneytum grunnskóla Kópavogs lögð fram.
Tillaga samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
02
Leikskólanefnd - 141. fundur
Svar við tillögu lagt fram.
Leikskólanefnd samþykkir tillögu um grænkerafæði í leikskólum Kópavogs.
03
Menntaráð - 97. fundur
Svar við tillögu lagt fram.
Menntaráð samþykkir með öllum greiddum atkvæðum tillögu um gerð áætlunar um að boðið verði upp á grænkerafæði í gunnskólum.
Um leið og menntaráð fagnar því að börnum verði boðið upp á grænkeramat í öllum grunnskólum Kópavogs beinir ráðið því til leikskólanefndar að vinna einnig að innleiðingu þess í leikskólum bæjarins. Börnum ætti ekki að mismuna eftir skólastigi.
04
Leikskólanefnd - 133. fundur
Tillaga lögð fram.
Leikskólanefnd felur menntasviði að greina hvernig óskum um veganfæði er mætt í leikskólum Kópavogs í dag.
05
Menntaráð - 82. fundur
Tillaga lögð fram.
Menntaráð felur menntasviði að vinna áfram tillögu um framkvæmd grænkeravalkosts í mötuneytum grunnskóla og félagsmiðstöðvum aldraðra.