Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Vallakór, Kórinn íþróttahús, Par 3 ehf. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi

Málsnúmer: 2109929

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3064. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 22. október 2021, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 28. september 2021, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Par 3 ehf., kt. 630410-0960, um tímabundið áfengisleyfi vegna tónleika Andrea Boccelli 27. nóvember 2021 frá kl. 18:00-23:00, í Kórnum íþróttahúsi, Vallarkór, 201 Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 30. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð veitir jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.