Til baka í fundargerðir
Funalind 2, Leikfélagið sf. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi
Málsnúmer: 2110076
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3063. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 19.10.2021, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 04.10.2021, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Leikfélagsins sf., kt. 580821-1620, um tímabundið áfengisleyfi vegna leiksýningar þann 27. október 2021 frá kl. 19:00-23:00, í Leikhúsinu að Funalind 2, Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 30. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.