Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Borgarlínan í Kópavogi. Deiliskipulag lota 1

Málsnúmer: 2110216

Ferill máls

01

Skipulagsráð - 170. fundur

Greint frá stöðu deiliskipulagsvinnu fyrir 1. lotu Borgarlínu í Kópavogi. Skipulagsvæðið nær frá syðri skipulagsmörkum Fossvogsbrúar eftir Bakkabraut og Borgarholtsbraut að fyrirhugaðri kjarnastöð á miðbæjarsvæðinu. Orri Gunnarsson skipulagsfræðingur frá VSÓ ráðgjöf gerði grein fyrir erindinu.

Greint frá stöðu mála.

02

Bæjarráð - 3144. fundur

Greint frá stöðu vinnu við tillögu að breyttu aðalskipulagi vegna Borgarlínu í Kópavogi lotu 1, rammahluti. Fulltrúar frá skipulagsdeild kynna.

03

Umhverfis- og samgöngunefnd - 167. fundur

Greint frá stöðu vinnu við tillögu að breyttu aðalskipulagi vegna Borgarlínu í Kópavogi lotu 1, rammahluti. Fulltrúar frá skipulagsdeild kynna.

Lagt fram og kynnt

04

Skipulagsráð - 149. fundur

Greint frá stöðu deiliskipulagsvinnu fyrir 1. lotu Borgarlínu í Kópavogi. Skipulagsvæðið nær frá syðri skipulagsmörkum Fossvogsbrúar eftir Bakkabraut og Borgarholtsbraut að fyrirhugaðri kjarnastöð á miðbæjarsvæðinu.

Orri Gunnarsson skipulagsfræðingur frá VSÓ ráðgjöf gerir grein fyrir erindinu.

Greint frá stöðu mála.

05

Skipulagsráð - 141. fundur

Farið yfir stöðu deiliskipulasvinnu fyrir 1. lotu Borgarlínu í Kópavogi á Bakkabraut og Borgarholtsbraut að fyrirhugaðri kjarnastöð á miðbæjarsvæðinu.

Greint frá stöðu mála.

06

Skipulagsráð - 107. fundur

Lagt fram erindi skipulagsdeildar þar sem óskað er heimildar skipulagsráðs til að hefja vinnu við gerð deiliskipulags fyrir 1. lotu Borgarlínu á Bakkabraut og Borgarholtsbraut. Erindinu fylgir yfirlitsmynd sem sýnir fyrirhugað skipulagssvæði dags. 15. október 2021.

Skipulagsráð samþykkir að hafin verði vinna við gerð deiliskipulags fyrir 1. lotu Borgarlínu í Kópavogi með sex atkvæðum. Kristinn D. Gissurarson sat hjá við afgreiðslu málsins.