Traðarreitur - vestur. Samkomulag um uppbyggingu á svæðinu
Málsnúmer: 2110506
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1245. fundur
Frá lögfræðideild dags. 18.10.2021, lögð fram drög að samkomulagi um uppbyggingu á svæðinu.
Tillaga Sigurbjargar E. Egilsdóttur um frestun málsins er felld með sex atkvæðum gegn atkvæðum Péturs H. Sigurðssonar, Bergljótar Kristinsdóttur, Einars A. Sigurðssonar, Sigurbjargar E. Egilsdóttur og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur.
Fundarhlé hófst kl. 19:36, fundi fram haldið kl. 19:45.
Bókun:
"Undirrituð telja eðlilegt að samþykkt samkomulaga um uppbyggingu á reitum B1-1 og B4 verði frestað þar til afgreiðsla Skipulagsstofnunar á deiliskipulaginu liggur fyrir. Á meðan væri tilvalið að koma til móts við óskir íbúa um opinn fund þar sem uppbyggingaráform væru kynnt."
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
Einar Þorvarðarson
Pétur Hrafn Sigurðsson
Bergljót Kristinsdóttir
Bæjarstjórn samþykkir framlagt samkomulag um uppbyggingu Traðarreits vestur með sex atkvæðum gegn atkvæðum Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Einars A. Þorvarðarsonar, Bergljótar Kristinsdóttur, Sigurbjargar E. Egilsdóttur og hjásetu Péturs H. Sigurðssonar.
02
Bæjarráð - 3063. fundur
Frá lögfræðideild dags. 18.10.2021, lögð fram drög að samkomulagi um uppbyggingu á svæðinu.
Bæjarráð samþykkir erindið með þremur atkvæðum, gegn atkvæði Theódóru S. Þorsteinsdóttur og hjásetu Péturs H. Sigurðssonar.