Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Erindi til sveitarfélaga vegna fyrirhugaðra bólusetninga 6-11 ára barna

Málsnúmer: 2201024

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3072. fundur

Frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, dags. 3. janúar 2022, lagt fram erindi varðandi fyrirhugaða bólusetninga 6-11 ára barna.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að fella niður kennslu í samræmi við miðlægt fyrirkomulag bólusetingar barna á höfuðborgarsvæðinu.

Komi til þess að nauðsynlegt sé að bólusetja í skólum samþykkir bæjarráð með fjórum atkvæðum og hjásetu Hjördísar Ý. Johnson að veita afnot af skólahúsnæði sveitarfélagsins og áréttar bæjarráð að hagsmunir barna verði hafðir að leiðarljósi í mögulegri framkvæmd innan veggja skólanna.