Smárahvammsvegur endurgerð götu og umferðaljósa
Málsnúmer: 22021256
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3120. fundur
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 17.02.2023, lagður fram til samþykktar bæjarráðs verksamnningur milli Kópavogsbæjar og Reykjafells ehf. um útvegun á umferðarljósabúnaði á Smárahvammsveg og Fífuhvammsveg.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagðan samning.
02
Skipulagsráð - 120. fundur
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 9. maí 2022, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs að leitað verði samninga við Smith og Norlands ehf. um kaup á umferðarljósum á Fífuhvammsveg og Smárahvammsveg. Einnig er óskað heimildar bæjarráðs að leita samninga við lægstbjóðandi verktaka, Sjörnugarða ehf.
03
Bæjarráð - 3089. fundur
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 9. maí 2022, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs að leitað verði samninga við Smith og Norlands ehf. um kaup á umferðarljósum á Fífuhvammsveg og Smárahvammsveg. Einnig er óskað heimildar bæjarráðs að leita samninga við lægstbjóðandi verktaka, Sjörnugarða ehf.
Fundarhlé hófst kl. 9:27, fundi fram haldið kl. 9:50
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita heimild til að leita samninga við lægstbjóðandi verktaka, Stjörnugarða ehf. um endurgerð Smárahvammsvegar.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur að veita heimild að leitað verði samninga við Smith og Norlands ehf. um kaup á umferðarljósum á gatnamótum Fífuhvammsvegar og Smárahvammsvegar.
Bókun:
"Undirrituð harmar mjög að útboðsmál skuli ekki vera komin í lag hjá Kópavogsbæ árið 2022. Hér er um tvö aðskilin útboð að ræða, enda auglýst í sitthvoru lagi. Þegar erindið um útboð á Smárahvammmsvegi var samþykkt fylgdu engin gögn um útboðið á umferðarljósabúnaði í málinu. Undirrituð lýsir því yfir að það er algjörlega á ábyrgð þeirra sem samþykkja málið, ef til kæru kemur."
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
04
Bæjarráð - 3086. fundur
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 5. apríl 2022, lögð fram gögn með erindi þar sem óskað var heimildar bæjarráðs til að bjóða út endurgerð Smárahvammsvegar milli Fífuhvammsvegar og Arnarnesvegar. Bæjarráð afgreiddi málið á síðasta fundi.
Lagt fram.
Bókun:
"Undirrituð lýsir yfir miklum vonbrigðum með vinnubrögð Kópavogsbæjar í þessu máli.
Hér eru að mati undirritaðrar um að ræða tvö útboðserindi og dagljóst að ekki hefur verið veitt heimild fyrir útboði á umferðaljósabúnaði fyrir Smárahvammsveg og Fífuhvammsveg, eins og auglýst er sjálfstætt á útboðsvef Ríkiskaupa. Engin útboðsgögn fyrir umferðaljósaútboðið lágu fyrir þegar Smárahvammsútboðið var samþykkt. Undirrituð hafnar því algjörlega að bera ábyrgð á útboði á umferðaljósabúnaði."
Theódóra S. Þorsteinsdóttir.
05
Bæjarráð - 3085. fundur
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 5. apríl 2022, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að bjóða út endurgerð Smárahvammsvegar milli Fífuhvammsvegar og Arnarnesvegar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum umbeðna heimild.