Garðabær, Hnoðraholt norður, leikskólalóð og búsetukjarni. Breyting á deiliskipulagi.
Málsnúmer: 2202248
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3078. fundur
Lagt fram erindi Sólveigar Helgu Jóhannsdóttur skipulagsfræðings f.h. Garðabæjar dags. 1. febrúar 2022, þar sem óskað er umsagnar Kópavogsbæjar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður.
Tillagan gerir ráð fyrir stækkun skipulagssvæðis til suðurs austan Vetrarbrautar á háholti Hnoðraholts. Gert er ráð fyrir 7.292 m² lóð fyrir leikskóla sem nefnist Haustbraut 1 og 3. 143 m² íbúðarlóð ætlaðri búsetukjarna fyrir fatlaða nefnd Haustbraut 2.
02
Skipulagsráð - 114. fundur

Lagt fram og kynnt.