Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Frístundastyrkir - eftirfylgni varðandi brottfallshópa

Málsnúmer: 2202355

Ferill máls

01

Íþróttaráð - 120. fundur

Lagðar fram upplýsingar frá Gerplu, HK og Breiðabliki varðandi brottfallshópa, þróun þeirra og eftirfylgni sem kallað var eftir á síðasta fundi íþróttaráðs.

Íþróttaráð þakkar fyrir framlagðar upplýsingar og væntir þess að áfram verði unnið í málunum m.a. með því afla þeirra upplýsinga sem hefur ekki enn verið skilað til Kópavogsbæjar.

02

Íþróttaráð - 119. fundur

Lögð fram ósk um að að kalla eftir upplýsingum er varðar brottfallshópa hjá félögum, þróun þeirra og eftirfylgni.

Á síðasta fundi Íþróttaráðs var lögð fram kynning um nýtingu frístundastyrkja í Kópavogi á árinu 2021. Þar kemur fram á blaðsíðu þrjú að hlutfallsleg nýting lækkar nokkuð skarpt á 16., 17. og 18. aldursári. Frá 11 ára aldri að 15 ára þá lækkar nýtingin úr 87% í 77%. Nýtingin fellur hins vegar úr 77% hjá 15 ára í 63% hjá 16 ára, 55% hjá 17 ára og niður í 43% hjá 18 ára. Það er því 16, 17 og 18 ára hóparnir sem skera sig úr, þ.e.a.s. einstaklingar fædd á árinu 2003, 2004 og 2005.

Í Menntastefnu Kópavogsbæjar 2021 - 2030 kemur fram að aðgengi að fjölbreyttu frístunda- og íþróttastarfi sé einnig tryggt með frístundastyrkjum til barna og ungmenna og uppbyggingu aðstöðu og stuðningsþjónustu fyrir ungt fólk 16-25 ára. Í menntastefnunni er athygli því sérstaklega beint að þeim aldurshóp sem að framan greinir. Af þeirri ástæðu er eftirfarandi spurningar lagðar fram og varða þá árganga sem getið er hér um að framan.

Óskað er eftir því að þeir samningsaðilar Kópavogsbæjar um aðild að frístundastyrkjakerfi bæjarfélagsins og raða sér í efstu 3 sætin yfir fjölda notenda svari eftirfarandi spurningum:

1. Óskað er eftir upplýsingum um fjölda þátttakenda við lok árs 2021, 2018 og 2015 í hverri íþróttagrein eða fagi að hvoru kyni sem fædd voru á árunum 2003, 2004 og 2005.

2. Óskað er eftir upplýsingum um hvort ráðist hafi verið í sérstök verkefni á undanförnum 24 mánuðum sem beint er að því að vinna gegn brottfalli þátttakenda sem eru á 16., 17. og 18. aldursárinu og ef svo er þá er óskað eftir nánari lýsingu á þeim verkefnunum, hvernig fylgst hefur verið með þeim og hver árangurinn hefur verið hingað til.

3. Óskað er eftir afriti af þeim ferlum sem til staðar eru hjá samningsaðila sem varðar eftirfylgni með iðkendum sem eru í brottfallshættu og hvernig upplýsingum um þá úrvinnslu er miðlað áfram til stjórnar viðkomandi samningsaðila. Þá er óskað eftir upplýsingum um hvenær þeir ferlar voru samþykktir af viðkomandi samningsaðila og hvenær þeir verða næst endurskoðaðir.

03

Íþróttaráð - 118. fundur

Lögð fram og kynnt samantekt íþróttadeildar yfir nýtingu og þróun Frístundastyrkja Kópavogs frá 2015-2021.

Íþróttafulltrúi gerði grein fyrir samantekt á nýtingu frístundastyrkja sl. ár.