Til baka í fundargerðir
Digranesheiði 45, fyrirspurn.
Málsnúmer: 22032324
Ferill máls
01
Skipulagsráð - 117. fundur
Lögð fram fyrirspurn Helga Hjálmarssonar arkitekts f.h. lóðarhafa dags. 21. mars 2022. Í erindi felst að hús á lóðinni byggt 1955 verði rifið, stærð er 94 m² auk bílskúrs 47,8 m², stærð lóðarinnar er 1118 m².
Á lóðinni verði byggt tveggja hæða raðhús með fjórum íbúðum, alls 492 m². Auk þess opið bílskýli fyrir fjóra bíla. Nýtingarhlutfall yrði 0,44.
Uppdrættir í mkv. 1:200 ásamt greinargerðum dags. 10. mars 2022 og 21. mars 2022.
Skipulagsráð lítur jákvætt á að framlögð tillaga verði unnin áfram í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.