Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Kjarrhólmi 2 - 38, framkvæmdaleyfi vegna rafhleðslustöðva.

Málsnúmer: 22032524

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3085. fundur

Lagt fram á ný erindi Hlyns Bárðarsonar f.h. stjórnar húsfélags Kjarrhólma 2-38 dags. 23. mars 2022. Óskað er eftir leyfi til framkvæmda á bæjarlandi vegna rafhleðslustöðva fyrir bifreiðar á eystri hluta bílastæða.

Meðfylgjandi: Skýringarmynd.

Á fundi skipulagsráðs 28. mars 2022 var afgreiðslu frestað, vísað til umsagnar umhverfissviðs.

Þá lögð fram umsögn umhverfissviðs dags. 29. mars 2022.

Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með fjórum atkvæðum og hjáseta Péturs H. Sigurðssonar."

Bókun:

"Undirrituð telja jákvætt að fjölga rafhleðslustöðvum við fjölbýlishús og hvetja bréfritara til þess að senda inn nýtt og nákvæmara erindi að höfðu samráði við umhverfissvið bæjarins."

Bókun:

"Undirrituð telja að Kópavogur eigi að heimila uppsetningu hleðslustöðva á hluta bílastæða við Kjarrhólma 2-34, enda eru bílastæðin á bæjarlandi Kópavogs. Hér er kjörið tækifæri fyrir Kópavogsbæ að taka þátt í orkuskiptum í samgöngum og gefa íbúum í einu af stærsta fjölbýlishúsi bæjarins tækifæri til þess að kaupa sér rafmagnsbíla og taka þannig þátt í orkuskiptum í samgöngum."

Pétur Hrafn Sigurðsson

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

02

Skipulagsráð - 118. fundur

Lagt fram á ný erindi Hlyns Bárðarsonar f.h. stjórnar húsfélags Kjarrhólma 2-38 dags. 23. mars 2022. Óskað er eftir leyfi til framkvæmda á bæjarlandi vegna rafhleðslustöðva fyrir bifreiðar á eystri hluta bílastæða.

Meðfylgjandi: Skýringarmynd.

Á fundi skipulagsráðs 28. mars 2022 var afgreiðslu frestað, vísað til umsagnar umhverfissviðs.

Þá lögð fram umsögn umhverfissviðs dags. 29. mars 2022.

Skipulagsráð hafnar erindinu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

03

Skipulagsráð - 117. fundur

Lagt fram erindi Hlyns Bárðarsonar f.h. stjórnar húsfélags Kjarrhólma 2-38 dags. 23. mars 2022. Óskað er eftir leyfi til framkvæmda á bæjarlandi vegna rafhleðslustöðva fyrir bifreiðar á eystri hluta bílastæða.

Meðfylgjandi: Skýringarmynd.

Afgreiðslu frestað. Vísað til umsagnar umhverfissviðs.