Til baka í fundargerðir
Starfsaðstæður og öryggi starfsmanna á velferðarsviði
Málsnúmer: 2204647
Ferill máls
01
Velferðarráð - 101. fundur
Í ljósi nýlegrar íkveikju í húsnæði velferðarsviðs í Fannborg 6 fóru fram umræður um starfsaðstæður í húsinu.
Velferðarráð vill leggja áherslu á nauðsyn þess að öryggismál á skrifstofum velferðarsviðs séu fullnægjandi. Tryggja þarf að starfsmenn sviðsins upplifi sig örugga í starfi sínu og að tekið sé tillit til óska þeirra og þarfa hvað varðar öryggi og aðgengi.
Auk þess ítreka nefndarmenn að brýnt er að huga að framtíðar húsnæði fyrir skrifstofu velferðarsviðs.