Til baka í fundargerðir
Hjóla- og göngustígur meðfram Hafnarfjarðarvegi, deiliskipulag.
Málsnúmer: 2204680
Ferill máls
01
Skipulagsráð - 119. fundur
Lagt fram erindi umhverfissviðs dags. 28. apríl 2022 þar sem óskað er heimildar skipulagsráðs til að hefja skipulagsvinnu fyrir hjóla- og göngustíg meðfram Hafnarfjarðarvegi, frá sveitarfélagsmörkum Garðabæjar og Kópavogs að Hamraborg.
Birkir Rútsson deildarstjóri gatnadeildar gerir grein fyrir erindinu.
Skipulagsráð samþykkir að hafin verði vinna við deiliskipulag hjóla- og göngustígs meðfram Hafnarfjarðarvegi.
Bókun frá Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur: "Undirrituð leggur áherslu á að samráð verði haft við Landssamtök hjólreiðamanna strax við upphaf skipulagsvinnu."
Einar Örn Þorvarðarson og Bergljót Kristinsdóttir taka undir bókun Sigurbjargar.