Bakkabraut 9-23, reitur 8. Breytt deiliskipulag. Fyrirspurn.
Málsnúmer: 2205847
Ferill máls
01
Skipulagsráð - 122. fundur
Lögð fram að nýju fyrirspurn Björns Skaptason arkitekts fh. lóðarhafa dags. 12. maí 2022 um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar ásamt uppfærðum gögnum dags. 16. júní 2022. Í breytingunni felst aukning byggingarmagns á lóðinni um alls 1.220 m2. Þar af 774 m2 af A-rýmum í sameign neðanjarðar, 305,8 m2 af A-rýmum ofanjarðar á 1.-5. hæð og 327,8 m2 af B-rýmum ofanjarðar vegna stækkunar svala og breytts fyrirkomulags loftræstingar. Fyrirkomulag geymslna breytist og sérgeymslum er komið fyrir í kjallara innan bílageymslu. Fjöldi bílastæða er óbreyttur 103 stæði í niðurgrafinni bílageymslu ásamt 29 stæði ofanjarðar. Samtals 162 bílastæði. Nýtingarhlutfall hækkar úr 1,9 í 2,2.
Meðfylgjandi skýringaruppdrættir í mkv. 1:200 dags. 27. maí 2022.
Á fundi skipulagsráðs 30. maí 2022 var afgreiðslu frestað.
Þá lagt fram uppfært erindi dags. 16. júní 2022 þar sem fallið er frá áformum um að koma fyrir 11 bílskúrum innan niðurgrafinnar bílageymslu.
Fundarhlé 18:27
Fundur hófst á ný kl. 18:38
Skipulagsráð samþykkir að líta jákvætt á að framlögð fyrirspurn verði unnin áfram í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með fjórum atkvæðum gegn atkvæðum Einars Þorvarðarsonar, Hákons Gunnarssonar og Kolbeins Reginssonar.
Bókun: Undirrituð hafna tillögu um aukið byggingarmagn. Ekki hefur verið lögð fram uppfærð rammaáætlun í skipulagsráði fyrir alla byggingarreiti á Kársnesi.
Einar Þorvarðarson, Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, Hákon Gunnarsson og Kolbeinn Reginson.
Kristinn D. Gissurarson vék af fundi kl. 18:41
- 20220509_Bakkabraut 9-23_Kársnesi_grunnmynd kjallara_tillaga að stækkun
- 20220616 Fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi Reitur 8 Kársnesi
- Bakkabraut 9-23_mhl-02- stærðir fyrir og eftir breytingar - A rými ofanjarðar
- 01.Fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi Reitur 8 Kársnesi
- 20220527_Bakkabraut 9-23_grunnmyndir yfirlit_vegnabreytinga
- Bakkabraut 9-23_mhl-01- stærðir fyrir og eftir breytingar - A rými ofanjarðar
- 20220615_Bakkabraut 9-23_grunnmynd kjallari heild_
- 20220128_Bakkabraut 09-23_Grunnmynd kjallara_Stimpluð teikning
02
Skipulagsráð - 121. fundur
Lagt fram fyrirspurn Björns Skaptason arkitekts fh. lóðarhafa dags. 12. maí 2022, varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar. Óskað er eftir afstöðu skipulagsráðs um mögulega stækkun á kjallara. Aukning á byggingarmagni yrði samtals 1.220m², kjallari-A rými neðanjarðar 774m² og 1-5 hæð-A rými ofanjarðar 305m². Bílastæðafjöldi myndi vera áfram 103 í kjallara en 34 geymslur úr íbúðum myndu vera færðar niður í kjallarann ásamt því að komið yrði fyrir 11 bílskúrum. Byggingarreitur neðanjarðar myndi þurfa að stækka um 10 m² að öðru leiti eru breytingar innan byggingarreits.
Meðfylgjandi skýringaruppdættir dags. maí 2022.
Afgreiðslu frestað.