Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Innkaup á verkum Gerðar Helgadóttur

Málsnúmer: 2205907

Ferill máls

01

Lista- og menningarráð - 140. fundur

Kaup á verkum eftir Gerði Helgadóttur.

Lista- og menningarráð fagnar heilshugar þeim tveimur tímamótaverkum Gerðar Helgadóttur sem Gerðarsafni stendur til boða og samþykkir að veita safninu 1,5 milljón króna til kaupa á verkunum. Ráðið leggur jafnframt til að Gerðarsafn nýti framlag til listaverkakaupa, úr sjóði lista- og menningarráðs, til að mæta þeim kostnaði sem út af stendur, enda um að ræða einstakt tækifæri til að efla safneign Gerðarsafns.