Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Tillaga frá bæjarfulltrúm Vina Kópavogs, Viðreisnar, Pírata og Samfylkingar um skipan starfshóps bæjarfulltrúa allra flokka um breytingar á bæjarmálasamþykkt Kópavogsbæjar

Málsnúmer: 22061240

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3091. fundur

Lögð fram tillaga frá bæjarfulltrúm Vina Kópavogs, Viðreisnar, Pírata og Samfylkingar um skipan starfshóps bæjarfulltrúa allra flokka um breytingar á bæjarmálasamþykkt Kópavogsbæjar

Fundarhlé hófst kl. 10:43, fundi fram haldið kl. 11:26

Bæjarráð hafnar tillögunni með þrem atkvæðum gegn atkvæðum Einars A. Þorvarðarsonar og Kolbeins Reginssonar.

Bókun:

"Meirihlutinn tekur undir mikilvægi þess að fara í endurskoðun á bæjarmálasamþykkt Kópavogsbæjar enda í fullu samræmi við áherslur sem birtast í meirihlutasáttmálanum. Við teljum hins vegar rétt, í ljósi þess hversu mikil endurnýjun bæjarfulltrúa varð í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum, að nýkjörnum fulltrúum verði veitt ráðrúm til þess að öðlast þekkingu og reynslu af stjórnsýslunni og störfum kjörinna fulltrúa áður en ráðist verði í endurskoðunina. Ekki síst með það fyrir augum að vinna við endurskoðun verði með markvissum hætti og skili góðum árangri. Við leggjum til að þessi vinna hefjist eigi síðar en í árslok 2023."

Orri Hlöðversson

Andri Steinn Hilmarsson

Hjördís Ýr Johnson

Ásdís Kristjánsdóttir

Bókun:

"Fulltrúar Vina Kópavogs, Viðreisnar, Pírata og Samfylkingar leggja áherslu á mikilvægi þess að hefja vinnu við endurskoðun bæjarmálasamþykktar sem fyrst, með það að markmiði að einfalda, hagræða og auka skilvirkni nefndarkerfisins. Engin ástæða er til þess að bíða með að hefja þessa vinnu, þvert á móti er það mikill kostur að nýir bæjarfulltrúar komi að borðinu með fersk augu."

Bergljót Kristinsdóttir

Einar Ö. Þorsteinsson

Sigurbjörg E. Egilsdóttir

Kolbeinn Reginsson