Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Engihjalli 1. Styrkbeiðni vegna uppsetningu á djúpgámum í kjölfar kröfu vinnueftirlits um bættar aðstæður við sorphirðu

Málsnúmer: 22061279

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3096. fundur

Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 22.08.2022, lögð fram umsögn vegna styrkbeiðni á uppsetningu djúpgáma við Engihjalla 1.

Bæjarráð telur ekki forsendur vera fyrir því að verða við óskum einstakra fasteignaeigenda um styrk til úrbóta vegna breytinga á sorphirðu og kröfum um bætt aðgengi að sorpgeymslum.

Bókun:

"Bæjarráð telur að skoða þurfi ávinning af því að innleiða djúpgámalausnir við eldri fjölbýlishús í bæjarfélaginu. Einnig að málið verði skoðað í víðara samhengi fyrir höfuðborgarsvæðið í heild á vettvangi SSH með það að markmiði að samræma reglur þar um."

02

Bæjarráð - 3091. fundur

Frá Lögmönnum Kópavogi, dags. 13. maí 2022, lögð fram styrkbeiðni fyrir hönd húsfélagsins við Engihjalla 1, vegna djúpgáma.

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.