Til baka í fundargerðir
Dalsmári 5, Fífa, Concept Events. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tækifærisleyfis vegna árshátíðar
Málsnúmer: 2208622
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3099. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 06.09.2022, lögð fram umögn um umsókn Concept Events ehf., kt. 710714-0370, þar sem óskað er eftir tímabundnu áfengisleyfi vegna árshátíðar Marel þann 24. september frá kl. 18:00-01:00, í Fífunni knattspyrnuhöll, Dalsmára 5, 201 Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/20017 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 30. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.