Til baka í fundargerðir
Aðalskipulag Garðabæjar og deiliskipulag. Samgöngu- og þróunarás Garðabæ. Skipulags- og matslýsing.
Málsnúmer: 2209904
Ferill máls
01
Skipulagsráð - 128. fundur
Lagt fram erindi Önnu Maríu Guðmundsdóttur, verkefnastjóra tæknideildar Garðabæjar, þar sem óskað er eftir umsögn Kópavogsbæjar um skipulags- og matslýsingu fyrir gerð rammahluta aðalskipulags Garðabæjar og deiliskipulagsáætlanir fyrir þróunarsvæði A skv. aðalskipulagi Garðabæjar, ásamt Hafnarfjarðarvegi milli bæjarmarka skv. 30. gr. og 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsráð gerir ekki athugasemdir við framlagða lýsingu en áskilur sér rétt til athugasemda á síðari stigum skipulagsferlisins. Skipulagsráð vill jafnframt benda á að mikilvægi þess að samtal eigi sér stað milli sveitarfélaganna um tilhögun við sveitarfélagamörk.