Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Fyrirspurn um stöðu á yfirfærslu félagsstarfs aldraðra frá formanni velferðarráðs

Málsnúmer: 2211177

Ferill máls

01

Velferðarráð - 110. fundur

Greinargerð verkefnastjóra velferðarsviðs og deildarstjóra frístundadeildar menntasviðs dags. 14.11.2022, ásamt tilgreindu fylgiskjali, lögð fram.

Velferðarráð þakkar góða kynningu og færir deildarstjóra frístundadeildar og starfsfólki félagsstarfs aldraðra þakkir fyrir vel unnin störf í þágu málaflokksins.

02

Velferðarráð - 109. fundur

Björg Baldursdóttir varabæjarfulltrúi Framsóknarflokks og formaður velferðarráðs óskar eftir upplýsingum um stöðu á yfirfærslu félagsstarfs aldraðra frá menntasviði til velferðarsviðs sem fyrirhuguð er um næstu áramót.

Velferðarráð felur sviðsstjóra velferðarsviðs að svara fyrirspurn um stöðu á yfirfærslu félagsstarfs aldraðra.