Íþróttakarl og Íþróttakona Kópavogs - Framkvæmd kjörsins 2022
Málsnúmer: 22114558
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 127. fundur
Tekið til afgreiðslu kjör á íþróttakonu og íþróttakarli Kópavogs 2022. Netkosning meðal bæjarbúa stóð yfir frá 20. des til 4.janúar sl. Þetta er í sjöunda sinn sem bæjarbúar taka beinan þátt í kjörinu. Lagðar fram niðurstöður úr kjöri íþróttaráðs og kjöri íbúa bæjarins.
Íþróttaráð samþykkir að útnefna Sóleyju Margréti Jónsdóttur kraftlyftingakonu sem Íþróttakonu Kópavogs 2022 og Höskuld Gunnlaugsson knattspyrnumann sem Íþróttakarl Kópavogs 2022.
Íþróttaráð samþykkir framlag að upphæð 250.000 kr. til íþróttakonu Kópavogs og 250.000 kr. til íþróttakarls Kópavogs.
02
Íþróttaráð - 125. fundur
Frá árinu 2016 hefur bæjarbúum gefist tækifæri til að taka beinan þátt í kjöri á íþróttakonu og íþróttakarli Kópavogs með rafrænni kosningu. Góð reynsla hefur verið af þessu fyrirkomulagi og lagt er til að unnið verði út frá sömu reglum og verið hefur, við kjörið árið 2022.
Íþróttaráð samþykkir að unnið verði út frá sömu reglum og verið hefur sl. ár varðandi kjörið. Netkosning meðal íbúa standi yfir frá 20. desember til 31. desember nk.