Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Erindi frá forstjóra Vinnumálastofnunar varðandi húsnæði fyrir umsækjendur um alþjóðlega verndar

Málsnúmer: 2212347

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3111. fundur

Frá Vinnumálastofnun dags. 08.12.2022, lagð fram erindi vegna fyrirhugaðrar leigu á húsnæði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd í Kópavogi.

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar sviðsstjóra velferðarsviðs.

Bókun bæjarráðs:

"Kópavogsbær vill leggja sitt af mörkum við móttöku flóttafólks á Íslandi. Nú þegar standa yfir viðræður um þátttöku sveitarfélagsins í samræmdri móttöku í samráði við Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið.

Kópavogsbær kallar eftir sambærilegu samráði við Vinnumálastofnum um hvernig skuli staðið að móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd er varðar grunnþjónustu, s.s. í skóla- og velferðarmálum.

Bent er á að sá fjöldi sem VMST hyggst koma fyrir í húsnæðinu sem hér um ræðir er töluvert yfir þeim fjölda sem rekstrarleyfi húsnæðisins heimilar. "