Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2036. Landnotkun Rjúpnahæð, skipulagslýsing.
Málsnúmer: 2212508
Ferill máls
01
Skipulagsráð - 135. fundur
Lagt fram að nýju erindi Arinbjarnar Vilhjálmssonar skipulagsstjóra Garðabæjar dags. 12. desember 2022. Óskað er eftir umsögn Kópavogsbæjar um skipulagslýsingu fyrir tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2036. Í breytingunni felst breytt landnotkun á óbyggðu svæði í Rjúpnadal og Rjúpnahlíð sem liggur að sveitarfélagsmörkum Kópavogs.
Arinbjörn gerði grein fyrir erindinu á fundi skipulagsráðs 19. desember 2022. Á fundinum var afgreiðslu frestað. Vísað til umsagnar skipulagsdeildar.
Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 13. janúar 2023.
Skipulagsráð samþykkir ofangreinda umsögn skipulagsdeildar dags. 13. janúar 2023 þar sem fram koma athugasemdir og ábendingar við kynnta skipulagslýsingu á tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar.
Skipulagsráð samþykkir jafnframt eftirfarandi bókun: Skipulagsráð Kópavogs leggst alfarið gegn því að landnotkun í Rjúpnahlíð verði breytt úr opnu svæði sem er hluti græna trefilsins í svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins, í athafnasvæði. Slík breyting mun hafa óafturkræf neikvæð áhrif á m.a. ásýnd, umhverfi, umferð og samgöngur í efri byggðum Kópavogs og víðar.
02
Skipulagsráð - 134. fundur
Lagt fram erindi Arinbjarnar Vilhjálmssonar skipulagsstjóra Garðabæjar dags. 12. desember 2022. Óskað er eftir umsögn Kópavogsbæjar um skipulagslýsingu fyrir tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2036. Í breytingunni felst breytt landnotkun á óbyggðu svæði í Rjúpnadal og Rjúpnahlíð sem liggur að sveitarfélagsmörkum Kópavogs.
Arinbjörn gerir grein fyrir erindinu.
Afgreiðslu frestað. Vísað til umsagnar skipulagsdeildar.