Ungmennaráð-Barna- og ungmennaþing 2023
Málsnúmer: 2301344
Ferill máls
01
Menntaráð - 122. fundur
Svör við tillögum ungmennaráðs og tillögum Barnaþings Kópvogs lögð fram til kynningar.
Amanda K. Ólafsdóttir deildarstjóri frístundadeildar gerði grein fyrir svörum við tillögum Ungmennaráðs og Barnaþings Kópavogs.
02
Ungmennaráð - 42. fundur
Svör við tillögum frá barna- og ungmennaþingi 2023.
Lagt fram til kynningar.
03
Bæjarráð - 3132. fundur
Á fundi bæjarráðs þann 01.06.2023 voru tillögur ungmennaráðs af Barnaþingi 2023 lagðar fram. Bæjarráð samþykkti að vísa tillögunum í farveg viðeigandi sviða bæjarins. Jafnframt vísaði bæjarráð erindinu til bæjarritara til tillögugerða, ásamt þeirri ósk að fá upplýsingar um afgreiðslu tillagna ársins 2022.
Lagt fram.
Bæjarráð samþykkir tillögur bæjarritara og að þeim verði vísað til viðeigandi sviðstjóra og/eða til gerðar fjárhagsáætlunar.
04
Bæjarráð - 3131. fundur
Tillögur ungmenna- og barnaþings kynntar fyrir Bæjarstjórn Kópavogs.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til tillögugerðar. Jafnframt er óskað eftir upplýsingum um afdrif tillagna síðasta árs.
05
Ungmennaráð - 40. fundur
Tillögur ungmenna- og barnaþings kynntar fyrir Bæjarstjórn Kópavogs.
Ungmennaráð Kópavogs kynnti fjórar tillögur fyrir Bæjarstjórn Kópavogs, jafnframt kynntu barnaþingmenn 6 tillögur af Barnaþingi Kópavogs. Bæjarfulltrúar tóku vel í tillögur ungmennaráðs og barnaþingmanna. Stefnt er að fundi aftur í haust til að ræða áfram þær tillögur sem börnin kynntu.
06
Ungmennaráð - 39. fundur
Vinna úr niðurstöðum ungmennaþings og velja tillögur til kynningar fyrir bæjarstjórn í vor.
Ungmennaráð valdi fjórar tillögur út frá niðurstöðum ungmennaþings sem kynntar verða fyrir Bæjarstjórn Kópavogs í lok maí.
07
Ungmennaráð - 34. fundur
Undirbúningur á barna- og ungmennaþingi, sem ungmennaráð tekur þátt í og stendur að einu sinni á ári.
Fulltrúar grunnskóla/félagsmiðstöðva í ungmennaráði taka þátt í undirbúningi á Skólaþingi í sínum skóla, og munu einnig koma inn á Barnaþing. Fulltrúar Menntaskólans í Kópavogi og Ungmennahúss Molans munu standa að sameiginlegu ungmennaþingi sem stefnt er á að halda í mars nk.