Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Ósk bæjarfulltrúa Pírata, Viðreisnar, Samfylkingar og Vina Kópavogs eftir upplýsingum um áætlaðan kostnað við akstur næturstrætó

Málsnúmer: 23021563

Ferill máls

01

Umhverfis- og samgöngunefnd - 163. fundur

Erindi frá bæjarfulltrúum Pírata, Samfylkingar og Vina Kópavogs, dags 28.02.2023 þar sem óskað er eftir upplýsingum um áætlaðan kostnað við akstur næturstrætó í Kópavogi og umræðu um fýsileika þess að reka sameiginlegan næturstrætó með Garðabæ og Hafnarfirði. Bæjarráð vísaði erindinu til umsagnar umhverfis- og samgöngunefndar á fundi sínum þann 2. mars 2023.

Bókun meiri hluta:

Undirritaðir efast um að forsendur séu fyrir þátttöku Kópavogsbæjar í rekstri næturstrætó að þessu sinni. Af þeim gögnum sem liggja fyrir eru hvorki efnahagslegar forsendur né aðrar hvað varðar samvinnu sveitarfélaga eða notkun næturstrætóar til staðar. Því telur umhverfis- og samgöngunefnd ekki ástæðu fyrir því að Kópavogsbær taki þátt í rekstri næturstrætóar eins og staðan er í dag. Rekstrargrundvöll vantar.

Hannes Steindórsson

Gunnar Sær Ragnarsson

Guðjón Ingi Guðmundsson

Bókun

Undirrituð telja mikilvægt að kanna alla möguleika til að auka samkeppnishæfni almenningssamganga og samfella í þjónustu allann sólarhringinn er þar stór þáttur. Því væri brýnt að fara í valkostargreiningar á möguleikum þeim sem myndu gefa bænum kost á að bjóða íbúum upp á næturstrætó.

Indriði I. Stefánsson

Leó Snær Pétursson

Jane Appleton

Björn Þór Rögnvaldsson

02

Skipulagsráð - 139. fundur

Frá bæjarfulltrúa Pírata, Viðreisnar, Samfylkingar og Vina Kópavogs, dags. 28.02.2023, lagt fram erindi þar sem óskað eftir upplýsingum um áætlaðan kostnað við akstur næturstrætó í Kópavogi og umræðu um fýsileika þess að reka sameiginlegan næsturstrætó með Garðabæ og Hafnarfirði.



03

Bæjarráð - 3120. fundur

Frá bæjarfulltrúa Pírata, Viðreisnar, Samfylkingar og Vina Kópavogs, dags. 28.02.2023, lagt fram erindi þar sem óskað eftir upplýsingum um áætlaðan kostnað við akstur næturstrætó í Kópavogi og umræðu um fýsileika þess að reka sameiginlegan næsturstrætó með Garðabæ og Hafnarfirði.



Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar umhverfis- og samgöngunefndar. Vakin er athygli nefndarinnar á fundargerð 361. stjórnarfundar Strætó bs. að því er varðar kostnaðargreiningu við rekstur næturstrætó.