Styrkir íþróttaráðs - kynning
Málsnúmer: 2302168
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3125. fundur
Á fundi íþróttaráðs 16. mars sl. voru reglur um styrki íþróttaráðs endurskoðaðar.
Í þeirri vinnu var ákveðið að leggja niður sérstyrki ráðsins og sameina undir ferðastyrki. Einnig var ákveðið að leggja niður árangursstyrki ráðsins og sameina undir Afrekssjóð íþróttaráðs. Breytingarnar eru gerðar með það að leiðarljósi að efla stuðning við afreksíþróttafólk í bænum.
Reglur um iðkenda/starfsstyrki, ferðastyrki og afrekssjóð voru endurskoðaðar og eru nú lagðar fram til samþykkis.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagðar breytingar á styrkjum íþróttaráðs.
02
Íþróttaráð - 130. fundur
Á fundi íþróttaráðs 16. mars sl. voru reglur um styrki íþróttaráðs endurskoðaðar.
Í þeirri vinnu var ákveðið að leggja niður sérstyrki ráðsins og sameina undir ferðastyrki. Einnig var ákveðið að leggja niður árangursstyrki ráðsins og sameina undir Afrekssjóð íþróttaráðs. Breytingarnar eru gerðar með það að leiðarljósi að efla stuðning við afreksíþróttafólk í bænum.
Reglur um iðkenda/starfsstyrki, ferðastyrki og afrekssjóð voru endurskoðaðar og eru nú lagðar fram til samþykkis.
Íþróttaráð samþykkir endurskoðaðar reglur um styrki íþróttaráðs og vísar þeim til samþykktar í bæjarráði.
03
Íþróttaráð - 129. fundur
Vinnufundur íþróttaráðs varðandi endurskoðun á styrkjum íþróttaráðs.
Unnið við endurskoðun reglugerða. Afgreiðsla tekin fyrir á næsta fundi íþróttaráðs.
04
Íþróttaráð - 128. fundur
Farið yfir og kynnt fyrir ráðinu þeir styrkir sem færast aftur yfir til íþróttaráðs ef SÍK verður lagt niður.
Lagt til og samþykkt að íþróttaráð komi saman til vinnufundar þar sem farið verður yfir reglur um úthlutun styrkja og þær endurskoðaðar.