Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Arnarnesháls. Viljayfirlýsing um endurskoðun sveitarfélagsmarka.

Málsnúmer: 2302656

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1313. fundur

Lögð fram drög að viljayfirlýsingu um endurskoðun sveitarfélagamarka Kópavogs og Garðabæjar á Arnarneshálsi.

Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum, gegn atkvæði Kolbeins Reginssonar og hjásetu Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur og Thelmu B. Árnadóttur framlagða viljayfirlýsingu um endurskoðun sveitarfélagamarka Kópavogs og Garðabæjar á Arnarneshálsi.

Bókun:

„Undirrituð lýsir yfir óánægju með að viljayfirlýsing um endurskoðun á sveitarfélagamörkum á Arnarneshálsi skuli fyrst núna koma fram. Skipulagsráð hefur samþykkt bókanir allt frá 14. mars 2022 um að viðræður við bæjaryfirvöld í Garðabæ þurfi að hefjast án tafa. Nú þremur árum seinna, þegar skipulagsvinna Garðabæjar er á lokametrunum, þá kemur hér fram viljayfirlýsing um m.a. að hefja skipulagsvinnu á svæðinu er varðar endurskoðun á sveitarfélagamörkum. Það er óskiljanlegt að sveitarfélögin Kópavogur og Garðabær skulu ekki vera komin lengra með viðræðurnar sem er stór forsenda fyrir því að skipulag Arnarlandsins gangi upp.“

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

02

Bæjarráð - 3201. fundur

Lögð fram drög að viljayfirlýsingu um endurskoðun sveitarfélagamarka Kópavogs og Garðabæjar á Arnarneshálsi.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar með þremur atkvæðum gegn atkvæði Kolbeins Reginssonar og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur.

03

Skipulags- og umhverfisráð - 1. fundur

Lögð fram drög að viljayfirlýsingu um endurskoðun sveitarfélagsmarka Kópavogs og Garðabæjar á Arnarneshálsi.

Lagt fram. Lögð er áhersla á mikilvægi þess að fyrirhugað samstarf sveitarfélaganna hefjist án tafar.

Theódóra S. Þorsteinsdóttir og Kolbeinn Reginsson sátu hjá við afgreiðslu málsins.

Bókun:

„Undirrituð leggja til að 3. og 4. málsgrein breytist og hljóði svo:

Aðilar eru sammála um að breyta sveitarfélagsmörkum sveitarfélaganna og gera tilheyrandi skipulagsbreytingar sem m.a. felast í breyttri landnotkun. Jafnframt lýsa aðilar vilja sínum til að þróa nánar umferðartengingar á svæðinu. Hafa skal samráð við landeigendur í þessari vinnu.

Horft verði til þess að svæði sem skilgreint er sem áfangi 2 í tillögu að deiliskipulagi Arnarlands í Garðabæ dags. 28. nóvember 2024 færist yfir í Kópavog og að samsvarandi svæði vestar í landinu, einnig vestan Hafnarfjarðarvegar, færist frá Kópavogi til Garðabæjar. Aðilar eru sammála um að það svæði sem færist á milli verði sambærilegt að stærð og verðmæti, sé þar munur á komi til greiðslu sem nemur mismun á stærð og verðmæti þess lands sem færist á milli skv. áliti sérfróðra aðila sem aðilar koma sér saman um.“

Hjördís Ýr Johnson, Kristinn D. Gissurarson, Andri S. Hilmarsson, Gunnar S. Ragnarsson og Hákon Gunnarsson.

Bókun:

„Undirrituð lýsir yfir óánægju með að viljayfirlýsing um endurskoðun á sveitarfélagamörkum á Arnarneshálsi skuli fyrst núna koma fram. Skipulagsráð hefur samþykkt bókanir allt frá 14. mars 2022 um að viðræður við bæjaryfirvöld í Garðabæ þurfi að hefjast án tafa. Nú þremur árum seinna, þegar skipulagsvinna Garðabæjar er á lokametrunum, þá kemur hér fram viljayfirlýsing um m.a. að hefja skipulagsvinnu á svæðinu er varðar endurskoðun á sveitarfélagamörkum. Það er óskiljanlegt að sveitarfélögin Kópavogur og Garðabær skulu ekki vera komin lengra með viðræðurnar sem er stór forsenda fyrir því að skipulag Arnarlandsins gangi upp.“

Theódóra S. Þorsteinsdóttir.