Reykjanesbraut - Bústaðavegur með tilliti til Borgarlínu. Matsáætlun. Umsagarbeiðni.
Málsnúmer: 23032451
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1277. fundur
Lagt fram erindi Egils Þórarinssonar, sviðsstjóra sviðs umhverfismats hjá Skipulagsstofnun, dags. 23. mars 2023 þar sem óskað er umsagnar Kópavogsbæjar um matsáætlun Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar um breytingar á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar og legu Borgarlínu á milli Stekkjarbakka og Vogabyggðar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 13 atkvæðum.
02
Skipulagsráð - 140. fundur
Lagt fram erindi Egils Þórarinssonar, sviðsstjóra sviðs umhverfismats hjá Skipulagsstofnun, dags. 23. mars 2023 þar sem óskað er umsagnar Kópavogsbæjar um matsáætlun Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar um breytingar á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar og legu Borgarlínu á milli Stekkjarbakka og Vogabyggðar.
Lagt fram. Skipulagsráð gerir ekki athugasemdir við framlagða matsáætlun.