Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Ályktun stjórnar Bandalags íslenskra listamanna um ákvarðanir bæjarstjórnar Kópavogs um framtíð menningarstofnana sinna

Málsnúmer: 23042187

Ferill máls

01

Lista- og menningarráð - 154. fundur

Ályktun stjórnar Bandalags íslenskra listamanna um ákvarðanir bæjarstjórnar Kópavogs um framtíð menningarstofnana sinna, dags. 27. apríl 2023.

Lagt fram.

Margrét Tryggvadóttir vék af fundi undir þessum lið.

Bókun:

Fulltrúar Viðreisnar, Vina Kópavogs og Pírata þakka stjórn Bandalags íslenskra listamanna fyrir ályktun sína og taka undir þau sjónarmið sem þar eru sett fram um vanþekkingu og lítilsvirðandi vinnubrögð meirihluta Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna í bæjarstjórn Kópavogs sem og að farin sé frumstæð og nánast barnaleg leið í mati á rekstri menningarstofnana bæjarins og engu skeytt um hið raunverulega gildi og tilgang starfsins fyrir samfélagið.

Ísabella Leifsdóttir,

Elvar Helgason og

Matthías Hjartarson

Bókun:

Fulltrúar meirihlutans leggja áherslu á að með þessu sé verið að forgangsraða fjármunum og nýta þá betur með það að markmiði að efla starfsemina í takt við breytta tíma.

Elísabet Sveinsdóttir

Helga Hauksdóttir

Kristín Hermannsdóttir