Til baka í fundargerðir
Afgreiðsla vegna útboðs á akstri strætisvagna
Málsnúmer: 2304872
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3127. fundur
Frá Strætó bs., dags. 22.03.2023, lögð fram tillaga um endurútboð á akstri almenningsvagna til átta ára með heimild til framlengingar í tvö ár. Strætó bs. verði þá falið að senda tillöguna til umræðu og afgreiðslu á vettvangi aðildarsveitarfélaganna. Um er að ræða útboð á sama hluta aksturs Strætó bs., að teknu tilliti til breytinga á leiðakerfi, og nú þegar er boðinn út. Að öðru leyti er vísað til meðfylgjandi minnisblaðs frá Mannviti, dagsett 16. mars 2023, sem útlistar fyrirkomulag útboðs.
Óskað er eftir samþykki bæjarráðs um framlagða tillögu.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða tillögu frá stjórn Strætó bs. um endurútboð á akstri almenningsvagna til átta ára með heimild til framlengingar um tvö ár.