Til baka í fundargerðir
Stjórn Félags héraðsskjalavarða á Íslandi fer fram á að ákvörðun um lokun Héraðsskjalasafns Kópavogs verði endurskoðuð
Málsnúmer: 23051358
Ferill máls
01
Lista- og menningarráð - 154. fundur
Erindi frá stjórn Félags héraðsskjalavarða á Íslandi um lokun Héraðsskjalasafns Kópavogs, dags. 9. maí 2023.
Lagt fram.
Bókun:
Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar, Vina Kópavogs og Pírata þakka fyrir ályktun stjórnar Félags héraðsskjalavarða á Íslandi og taka undir hvatningu til bæjaryfirvalda um fagleg vinnubrögð og að fundin verði ásættanleg lausn á framtíð safnsins og skjalamálum sveitarfélagsins.
Margrét Tryggvadóttir,
Ísabella Leifsdóttir,
Elvar Helgason og
Matthías Hjartarson
Bókun
Rík áhersla verður á að varðveita menningarleg verðmæti við breytingu á starfsemi Hérðasskjalasafnsins.
Elísabet Sveinsdóttir
Helga Hauksdóttir
Kristín Hermannsdóttir