Til baka í fundargerðir
Erindi frá Tónlistarskóla Kópavogs varðandi skipun starfshóps um rekstur Salarins
Málsnúmer: 23051455
Ferill máls
01
Lista- og menningarráð - 154. fundur
Erindi frá stjórn Tónlistarskóla Kópavogs vegna skipan starfshóps um stefnumótun Salarins, dags. 15. maí 2023.
Lagt fram.
Ísabella Leifsdóttir vék af fundi undir þessum lið.
Bókun ráðsins:
Lista- og menningarráð tekur undir með stjórn Tónlistarskóla Kópavogs að brýnt sé að skólinn eigi fulltrúa í fyrirhuguðum starfshópi um framtíð Salarins. Þá þarf að skoða hvort útvistun Salarins sé gerleg án aðkomu eða samþykkis Tónlistarskóla Kópavogs þar sem Tónlistarskólinn á 22,15% í Salnum.