Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Beiðni frá bæjarfulltrúa Bergljótu Kristinsdóttur um upplýsingar og gögn varðandi framtíð Fannborgarsvæðisins

Málsnúmer: 23051750

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3132. fundur

Óskað er eftir að nýr leigusamningur við Árkór vegna Fannborgar 6 verði lagður fyrir bæjarráð. Jafnframt er óskað eftir upplýsingum um hugmyndir sem meirihlutinn hefur um endurnýjun Fannborgarsvæðisins í náinni framtíð og hvenær vænta megi ákvarðana í því máli.

Lagt fram.

"Fyrirspurninni var beint til stjórnenda bæjarins sem upplýsingar hafa um stöðu málsins og því er afar óviðeigandi að fá svar frá bæjarritara sem segist engar upplýsingar hafa.

Bergljót Kristinsdóttir."



02

Bæjarráð - 3130. fundur

Frá bæjarfulltrúa Bergljótu Kristinsdóttur, dags. 22.05.2023, lögð fram beiðni um upplýsingar og gögn varðandi framtíð Fannborgarsvæðisins.

Lagt fram.