Til baka í fundargerðir
Fyrirspurn bæjarfulltrúa Bergljótar Kristinsdóttur um hvort Kópavogsbær hyggst ganga til samninga við ríkið um samræmda móttöku flóttafólks
Málsnúmer: 2305379
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3128. fundur
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að taka málið á dagskrá með afbrigðum.
Undirrituð óskar svara við því hvort Kópavogsbær hyggst að ganga til samninga við ríkið um samræmda móttöku flóttafólks. Ef svarið er jákvætt er óskað eftir upplýsingum um áætlaðan fjölda sem samningurinn mun ná til og hvenær gera megi ráð fyrir niðurstöðu.
Bergljót Kristinsdóttir
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar sviðsstjóra velferðarsviðs.